Skráðu þig og staðfestu netfang
Búðu til aðgang með nafni, netfangi og öruggu lykilorði. Staðfestu netfangið áður en þú byrjar að nota helstu aðgerðir eins og skilaboð, tilboð og auglýsingar.
- Notaðu netfang sem þú hefur raunverulegan aðgang að.
- Veldu sterkt lykilorð sem þú notar ekki annars staðar.
- Ef staðfestingarpóstur berst ekki, skoðaðu ruslpóst eða sendu hann aftur.
Kláraðu prófílinn þinn
Góður prófíll eykur traust. Þú getur sett inn símanúmer og staðsetningu ef þú vilt auðvelda samskipti, en þú ræður hvaða upplýsingar birtast opinberlega.
- Hafðu nafn skýrt og raunverulegt.
- Settu síma aðeins ef þú vilt að kaupendur geti haft samband beint.
- Ekki birta heimilisfang nema það sé nauðsynlegt fyrir afhendingu.
Settu inn góða auglýsingu
Smelltu á „Setja inn“, veldu flokk, settu myndir og skrifaðu lýsingu sem svarar helstu spurningum kaupanda áður en hann þarf að spyrja.
Kaup, tilboð og afhending
Sem kaupandi getur þú sent skilaboð, gert tilboð eða notað „kaupa núna“ ef það er í boði. Sem seljandi getur þú samþykkt eða hafnað tilboðum á „Mín síða“.
- Staðfestu verð, afhendingu og ástand áður en greiðsla fer fram.
- Fyrir dýra hluti er best að skoða vöruna áður en greitt er.
- Notaðu rekjanlega greiðslu og geymdu kvittun.
Notaðu skilaboðakerfið skynsamlega
Skilaboð hjálpa til við að halda samskiptum rekjanlegum. Skrifaðu skýrt, vertu kurteis og geymdu mikilvæg atriði eins og verð, afhendingu og samkomulag.
Aldrei senda kortaupplýsingar, rafræn skilríki, greiðslukóða, bankainnskráningu eða lykilorð í skilaboðum.
Umsagnir og traust
Umsagnir hjálpa öðrum að meta traust. Þú getur aðeins gefið umsögn þegar viðskipti hafa átt sér stað í gegnum samþykkt tilboð. Vertu málefnalegur og segðu frá raunverulegri reynslu.
Vertu vakandi fyrir svindli
Ef eitthvað virðist of gott til að vera satt er rétt að stoppa og skoða betur. Tilkynntu grunsamlegar auglýsingar og notendur.
- Varastu erlenda greiðslulinka eða „sendiboða“ svindl.
- Ekki afhenda vöru fyrr en greiðsla er staðfest.
- Ekki smella á linka sem biðja um kort eða rafræn skilríki.