BeinKaup BeinKaupÍSLENSKUR MARKAÐUR
Öryggi

Öruggari kaup og sala

BeinKaup er hannað til að gera viðskipti snyrtilegri og öruggari, en notendur þurfa samt alltaf að gæta varúðar.

Fyrir kaupendur

  • Skoðaðu hlutinn sjálfur áður en þú greiðir ef mögulegt er.
  • Berðu saman verð og vertu varkár ef tilboðið er óeðlilega gott.
  • Notaðu skilaboðakerfið til að halda samskiptum rekjanlegum.
  • Ekki senda greiðslukóða, kortaupplýsingar eða rafræn skilríki.
  • Biddu um fleiri myndir eða kvittun ef verðmæti er hátt.

Fyrir seljendur

  • Ekki afhenda hlut fyrr en greiðsla er staðfest.
  • Passaðu þig á fölsuðum greiðslukvittunum.
  • Varastu „sendiboða“ eða erlenda greiðslulinka frá ókunnugum.
  • Hittu kaupanda á öruggum, opnum stað þegar það á við.
  • Tilkynntu grunsamleg skilaboð eða notendur strax.

Algeng scam merki

GreiðslulinkarÓkunnugur sendir link og biður þig að skrá kort eða rafræn skilríki.
Of fljót ákvörðunKaupandi vill kaupa strax án þess að spyrja um vöruna.
SendiboðiSegist senda DHL/UPS/annan aðila sem sækir hlutinn og þú þarft að greiða gjald.
Fölsuð kvittunMynd af greiðslu er send en peningur kemur ekki inn á reikning.

Hvað á ég að gera ef eitthvað virðist grunsamlegt?

Hættu samskiptum, ekki smella á linka og ekki gefa upp persónulegar greiðsluupplýsingar. Notaðu „Tilkynna“ á auglýsingu/notanda eða hafðu samband við BeinKaup.

Hafa samband