Veldu söluaðilaáskrift
Verslunarfídusar opnast eftir því hvaða virk og greidd áskrift er á aðganginum. Kerfið læsir bæði hnöppum og bakenda, þannig að notandi getur ekki notað Pro/Premium eiginleika nema rétt áskrift sé virk.
- Verslun birtist ekki opinberlega nema áskrift sé virk og verslun hafi verið samþykkt.
- Ef áskrift rennur út getur verslunin hætt að birtast opinberlega þar til hún er endurnýjuð.
- Greiðsla fyrir söluaðilaáskrift er aðskilin frá sölu vara milli kaupanda og seljanda.
Sæktu um verslun
Þegar áskrift eða frí prufa er virk getur þú sett upp verslun. Admin fer yfir umsókn til að tryggja að verslunin líti trúverðuglega út og brjóti ekki gegn reglum.
- Notaðu skýrt verslunarheiti.
- Skrifaðu stutta lýsingu á því hvað þú selur.
- Settu inn réttar upplýsingar um síma, netfang, afhendingu og greiðslumáta.
- Ekki nota vörumerki, myndir eða efni annarra nema þú hafir heimild.
Byggðu upp traust
Verslunarsíðan þín á að svara helstu spurningum kaupanda áður en hann pantar. Skýr framsetning eykur líkur á sölu og minnkar ágreining.
Settu vörur inn á faglegan hátt
Vörukerfið styður vörunúmer/SKU, lagerstöðu, magn, áður-verð, tilboðsmerkingar, vörumerki/badges, vöruflokka innan verslunar og valdar vörur á forsíðu verslunar.
- Hafðu eina vöru eða skýrt vörusett í hverri auglýsingu/vöru.
- Settu rétt magn og uppfærðu lagerstöðu reglulega.
- Notaðu “Uppselt” þegar vara er ekki lengur til og “Forpöntun” aðeins ef afhendingartími er skýr.
- Notaðu “Áður-verð” aðeins ef það er raunverulegt fyrra verð.
- Veldu “Valin vara” fyrir þær vörur sem eiga að birtast mest áberandi í versluninni, innan marka áskriftarinnar.
Takmörk á fjölda virkra vara, vöruflokka og valdra vara fara eftir áskriftarleið. Ef takmörkum er náð þarf að fela eldri vörur eða uppfæra áskrift.
Karfa og pantanir
Kaupandi getur sett vörur í körfu og stofnað pöntun. Ef karfan inniheldur vörur frá mörgum söluaðilum stofnar kerfið sér pöntun fyrir hvern söluaðila.
- Lager lækkar þegar pöntun er stofnuð, nema varan sé merkt sem forpöntun.
- Söluaðili sér pantanir í stjórnborði sínu og getur uppfært stöðu.
- Pöntunarstöður geta meðal annars verið: móttekin, staðfest, greidd, tilbúin/sent, lokið eða hætt við.
- Ef pöntun er felld niður skilar kerfið fráteknu magni aftur á lager þar sem það á við.
BeinKaup tekur ekki við greiðslu fyrir vöruna sjálfa í núverandi flæði. Kaupandi og söluaðili ganga sjálfir frá greiðslu og afhendingu sín á milli nema annað sé sérstaklega tekið fram.
Afslættir, póstlisti og tölfræði
Pro og Premium geta búið til afsláttarkóða sem kaupandi notar í checkout. Premium getur einnig safnað skráningum á póstlista á verslunarsíðunni.
Ekki senda ruslpóst. Notaðu póstlista aðeins fyrir fólk sem hefur sjálft skráð sig og virða þarf afskráningar/óskir notenda.
Svaraðu hratt og hafðu ferlið skýrt
Góð þjónusta skiptir miklu fyrir endurtekin viðskipti. Hafðu svör stutt, skýr og kurteis. Staðfestu verð, afhendingu og greiðslumáta áður en kaupandi greiðir.
- Ekki lofa afhendingu sem þú getur ekki staðið við.
- Geymdu kvittanir, sendingarnúmer og samskipti.
- Uppfærðu pöntunarstöðu þegar greiðsla, afhending eða lokun hefur átt sér stað.
- Merktu vörur sem seldar eða uppseldar þegar þær eru ekki lengur til.
Skattar, VSK, reikningar og neytendaréttur
BeinKaup sér ekki um rekstrarlegar skyldur söluaðila. Ef þú selur sem fyrirtæki eða í atvinnuskyni þarft þú sjálfur að tryggja að reksturinn sé rétt skráður og að þú fylgir reglum sem eiga við þína sölu.
Ekki koma fram sem einkaseljandi ef salan þín er í raun atvinnurekstur. Það getur verið villandi gagnvart kaupendum.
Skoða skilmála um söluaðilaBestu venjur fyrir meiri sölu
- Notaðu samræmdar myndir og titla.
- Hafðu verð, lagerstöðu og afhendingartíma uppfært.
- Svaraðu spurningum innan sólarhrings ef hægt er.
- Notaðu afsláttarkóða á skýran hátt og hafðu gildistíma sýnilegan.
- Biddu kaupanda kurteislega um umsögn eftir góð viðskipti.
- Notaðu toppun eða sýnileika þegar vara á að seljast hraðar.